Metfjöldi smita í gær: Líklegt að gripið verði til harðra aðgerða til að ná smitum niður

Alls greindust 167 innanlandssmit í gær og þar af voru 122 utan sóttkvíar. 108 þeirra sem greindust eru bólusettir. Aldrei hafa áður greinst svo mörg smit á einum degi frá því að faraldurinn hófst.

Ljóst er að hertar aðgerðir muni taka gildi en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í gær. Bæði hafa þau lýst yfir áhyggjum af stöðu mála en eins og staðan er núna liggja 16 inni á spítala, þar af fimm á gjörgæslu. Ríkisstjórnin situr á fundi og mun Svandís Svavarsdóttir væntanlega kynna harðari takmarkanir að fundi loknum.

Ekki þykir loku fyrir það skotið að samkomutakmarkanir verði hertar, grímuskylda tekin upp að nýju og þá verði opnunartími, til dæmis vínveitingahúsa, styttur að nýju. Svandís sagði í viðtali í Morgunútvarpinu í morgun að Þórólfur hefði skilað sögulegu og óvenjulegu minnisblaði í gær þar sem hann rakti faraldurinn til þessa, hvað hefur virkað til að ná smitum niður og hvað ekki.

Af þeim orðum að dæma þykir líklegt að Þórólfur vilji stíga fast á bremsuna til að ná smittölum niður að nýju.