Í gær greindist metfjöldi Covid-smita innanlands annan daginn í röð. Þau voru 286 í gær en 220 í fyrradag. Samanlagur fjöldi smita var 313. 11 eru nú á sjúkrahúsi með veiruna og tveir á gjörgæsludeild.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is.
Í gær bættust 325 sjúklingar við á Covid-göngudeild Landspítala en oftast nær fjölgar á göngudeildinni um þann fjölda sem greinist smitaður. Í fyrradag voru 1.807 sjúklingar á göngudeildinni og í gær voru þeir 2.035. Einhver hluti þeirra sem voru þar í fyrradag útskrifaðist í gær.
Tólf liggja inni á spítalanum vegna Covid-19 og er meðalaldur þeirra 58 ár. Tveir eru á gjörgæslu, þar af einn í öndunarvél samkvæmt tilkynningu frá Landspítala.
Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, sagði í færslu á Facebook í morgun að kringum 300 manns hefðu smitast af Covid-19 í gær. Segir hann tvöföldunartíma Ómíkron-afbrigðisins nálægt því að vera tveir til þrír dagar sem sé það mesta sem sést hafi í faraldrinum.
Búist er við því að tilkynningar sé að vænta innan skamms um hertar aðgerðir innanlands vegna fjölgunar smita. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti það við mbl.is í morgun.