Yfirvofandi er eitt mesta kuldakast í Reykjavík frá árinu 2013, að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings sem heldur úti vefnum Blika.is.
„Norðan loftið sem steypist yfir okkur næstu daga er hreinræktað heimskautaloft,“ segir Einar á vef Bliku og bætir við að vetrarkuldi sé almennt í stórum dráttum af tvennum toga.
„Annars vegar þegar er hæglátt og stjörnubjart. Yfirborðið kólnar og frost í 2 metra hæð mælist mikið. Ofar er oft hlýrra og því ekki endilega svo kalt loft á ferðinni. Hin gerðin er þegar loftið kemur frá köldum svæðum með strekkingi og stundum hvassri norðanátt. Þá mælist kannski ekki jafn mikið frost, en það bítur í vindinum. Þannig er það einmitt nú,“ segir Einar.
Hann segir að á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag og föstudag verði um 6 til 7 stiga frost og vindur um 10 metrar á sekúndu. Í norðanáttinni verði hvassast vestan Kvosarinnar og út á Seltjarnarnesi og Álftanesi. „Þá heldur minna frost. Austar er aukið Esjuskjól, en meira frost á móti.“
Einar segir að á klukkan 12 á morgun, fimmtudag, sé gert ráð fyrir sjö stiga frosti og tíu metrum á sekúndu við Veðurstofuna. Það er frost sem jafngildir nærri 16 gráðum.
„Sé horft á vindinn saman með kulda loftsins þarf líklega að fara aftur til 2013 (4-6 des.) til að finna eitthvað sambærilegt. Þá var vindur heldur hægari, en meira frost. "Kuldagæði" hins vegar svipuð. Mun kaldari tilvik má auðveldlega finna áður fyrr á árum s.s á milli 1965-1985,“ segir Einar og bætir við að ef til vill sé þörf á kuldaviðvörun þar sem dúða þarf leikskólabörn sérstaklega á fimmtudag og föstudag.
Aðrir úti við þurfi að huga að skjólgóðu höfuðfati og hlýjum vetrarskóm. Ullarvettlingar ættu líka að koma í góðar þarfir.
Veitur hafa virkjað viðbragðsáætlun vegna kuldakastsins sem er yfirvofandi. Í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í morgun kemur fram að áætlunin gangi meðal annars út á að hvetja fólk til að fara sparlega með heita vatnið svo öll hafi nægt vatn til húshitunar.
„Sé tekið mið af spálíkönum, sem nýta veðurspár til að áætla notkun, er útlit fyrir að hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu fari að þolmörkum á föstudag og fram yfir helgi. Um 90% af hitaveituvatni er notað til húshitunar og því skiptir afar miklu máli að fólk sé meðvitað um hvernig nýta á það sem best,“ sagði í tilkynningunni.
Fólk er hvatt til að gera eftirfarandi:
- Hafa glugga lokaða
- Hafa útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur
- Láta ekki renna í heita potta
- Stilla ofna svo þeir séu heitir að ofan en kaldir að neðan
- Varast að byrgja ofna, t.d. með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum
- Minnka þrýsting á snjóbræðslukerfum