Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq á Íslandi, segir að sameining Nasdaq verðbréfamiðstöðvarinnar á Íslandi við Nasdag CSD, sem kynnt var sl. mánudag, sé mesta innviðabreyting á íslenskum verðbréfamarkaði í tuttugu ár og einfaldi til dæmis erlendum fjárfestum að koma inn á íslenska markaðinn. Hann segir stýrivaxtalækkun Seðlabankans að skila sér og að ávöxtunarkrafan á verðtryggðum ríkisskuldabréfum sé núna annað hvort undir eða rétt yfir núllinu.
Þorvaldur Harðarson, stofnandi og frkvstj. Boðleiða, hefur haft í nógu að snúasta að undanförnu. Fyrirtækið er með mörg af stærstu fyrirtækjum landsins í viðskiptum og annast síma- og fjarfundatækni fyrir þau. Með komu farsímans hefðu margir talið að símkerfin myndu deyja út - en það er öðru nær. Þau hafa breyst í fjölbreytt samskiptakerfi þar sem símtækni, fjarfundir, myndfundir, netsímar og fl. blandast og sameinast í einn öflugan samskiptahugbúnað