Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson á Bylgjunni hefur svarað Helgu Völu Helgadóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, sem setti fram gagnrýni á viðtal hans við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
„Merkilegt að hlusta á Heimi Í bítinu. Það má ekki skilja annað en að hann telji rétt að svipta fólk af erlendu bergi sem býr hér á landi öllum borgaralegum réttindum og “henda þeim úr landi” án þess að hafa neitt fyrir sér um möguleg afbrot heldur bara grun um möguleg tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Ráðherra margsvarar að ef fólk brýtur af sér þá lúti það öðrum málum, fólk afpláni hluta dóms í heimalandi en það virðist ekki duga,“ sagði Helga Vala á Facebook.
Í viðtalinu var Áslaug Arna meðal annars spurð að því hvort skipulögð glæpastarfsemi væri að færast í vöxt hér á landi eða hvort hún væri að breytast. Tilefnið var atburðurinn hræðilegi við Rauðagerði um helgina þar sem erlendur einstaklingur var skotinn til bana. Hinn grunaði er einnig af erlendu bergi brotinn en málið er talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi.
Heimir var ekki lengi að bregðast við gagnrýni Helgu Völu og sagði: „Helga Vala Helgadóttir sem fyrrv útvarpsmaður ættir þú nú að vita að þær spurningar sem við berum fram, sérstaklega þegar kemur að ykkur stjórnmálamönnum, þurfa og eiga ekkert endilega að endurspegla okkar persónulegu skoðun. Margir hlustendur hafa sterka skoðun á þessu tiltekna máli og mér bar því skylda til að spyrja.“
Ummælin sem virðast hafa verið tilefni færslu Helgu Völu voru trúlega þessi:
Heimir: „Þegar maður heyrir af svona atburðum, það er að segja úr undirheimunum og útlendingar, eða erlendir glæpamenn, eiga í hlut þá yfirleitt alltaf kemur upp sú umræða meðal fólks heyrir maður: Er ekki hægt að vísa þessum mönnum bara hreinlega úr landi? Hvers vegna fá þeir að vera hérna? Hvað segirðu við því, er það svo auðvelt eða hvert er svarið við þessu? Reynið þið það?
Áslaug svaraði því til að það færi eftir ýmsu en forsendan fyrir slíkri ákvörðun væri rannsókn og niðurstaða. Benti Áslaug á að oft á tíðum væri fólki vísað úr landi og afpláni dóma á sínum heimaslóðum.
Síðar í viðtalinu spurði Heimir: „Ef lögreglan veit hverjir þetta eru, þó þeir hafi ekki brotið af sér, en hún veit að þeir tengjast erlendum glæpagengjum, af hverju er ekki – þetta er spurning frá hlustanda – hægt að víkja þessum einstaklingum úr landi?
Áslaug Arna svaraði að það þyrfti að hafa skýrar heimildir til þess og hún hefði ekki fengið þær upplýsingar frá lögreglu að hana vantaði slíkar heimildir.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Áslaugu Örnu hér.