„Merkasta kona ís­lenskrar flug­sögu heiðruð“

Erna Hjalta­lín, frum­kvöðull í ís­lenskri flug­sögu verður heiðruð af fluga­kademíu Ís­lands á fimmtu­daginn 28. Júní. Þetta kemur fram í Víkur­fréttum en þar segir að Erna sé „Merkasta kona ís­lenskrar flug­sögu“

Erna Hjalta­lín, fædd árið 1932, er ein merkasta kona ís­lenskrar flug­sögu sem hefur veitt mörgum konum inn­blástur. Erna smitaðist ung af flug­dellunni og vildi ólm kanna há­loftin. Erna var fyrsta konan til að taka einka­flug­manns­próf, at­vinnu­flug­manns­próf og að öðlast réttindi loft­siglinga­fræðings.

Erna fékk þó því miður ekki sömu tæki­færi og sam­nem­endur sínir í flug­skólanum, sem allir voru karl­menn og fengu fast­ráðningu hjá Loft­leiðum að loknu at­vinnu­flug­manns­prófi. Erna var því hvorki fast­ráðin at­vinnu­flug­maður né loft­siglinga­fræðingur á sinni ævi, en þó átti hún að baki 217 klukku­stundir sem flug­maður, 462 klukku­stundir sem loft­siglinga­fræðingur og sem flug­freyja flaug Erna í fleiri tugi þúsunda klukku­stundir.

Þrátt fyrir að Erna hafi ekki fengið sömu tæki­færi og sam­nem­endur sínir að þá ruddi hún svo sannar­lega far­veginn til fram­tíðar fyrir konur í flugi. Í dag er Ís­land fremst í flokki meðal annara þjóða hvað varðar kynja­hlut­föll flug­manna þrátt fyrir að enn sé rými til bætinga.

Erna lést þann 14. maí 2021 og fá því af­kom­endur hennar þann heiður að fara í fyrstu flug­ferðina á ný­nefndri Ernu Hjalta­lín í lok at­hafnar. At­höfnin fer fram kl. 16.30 þann 28. júlí. At­höfnin er opin öllum og hvetjum við fólk til að mæta á svæðið og heiðra Ernu Hjalta­lín með okkur.

Þetta er liður í því að heiðra frum­kvöðla í ís­lenskri flug­sögu en áður hefur Fluga­kademían nefnt kennslu­vélar eftir Al­freð Elías­syni stofnanda Loft­leiða, Arn­grími Jóhanns­syni flug­stjóra og stofnanda Air At­lanta, Herði Guð­munds­syni stofnanda flug­fé­lagsins Ernis og Dag­finni Stefáns­syni einum af stofn­endum Loft­leiða.