Merðirnir í stjórn RÚV vilja banna Ísrael frá Euro­vision: „Eiga ekki erindi á þennan vett­vang kær­leika, friðar og gleði“

Þeir Mörður Árna­son og Mörður Ás­laugar­son, sem báðir sitja í stjórn RÚV, lögðu fram bókun á fundi stjórnar RÚV í vikunni þar sem þeir segja að nú sé komið að því að taka aðild Ísraels til um­ræðu innan Sam­bands evrópskra sjón­varps­stöðva og heita á sjón­varps­stjóra, Stefán Ei­ríks­son, að beita sér fyrir því innan sam­bandsins.

Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Til­efni þessarar bókunar Marðar Árna­sonar og Marðar Ás­laugar­sonar er að yfir­stjórn Evrópsku úti­lokaði rúss­neska ríkis­sjón­varpið frá aðild að keppninni vegna inn­rásar rúss­neska hersins í Úkraínu.

„Við teljum það rétt­mæta á­kvörðun, því full­trúar styrj­aldar­stefnu í sam­skiptum þjóða eiga ekki erindi á þennan vett­vang kær­leika, friðar og gleði,“ segja þeir í bókun sinni og að í ljósi þessarar á­kvörðunar sé þátt­taka Ísraels „enn sér­kenni­legri en áður“.

„…ríkis sem í raun stendur í stöðugu stríði við þá þjóð sem landið byggði og byggir enn, þar sem stunduð er að­skilnaðar­stefna og of­sóknir gagn­vart Palestínu­mönnum og til­vist þeirra sem þjóðar ekki viður­kennd.“