Helgi Vilhjálmsson, oft kenndur við Góu og faðir Hannesar Þórs sem var myrtur árið 2010, segir að þeir sem drepa eigi að gjalda í sömu mynt.
Ísland í dag birtir í kvöld viðtal við Helga þar sem hann tjáir sig meðal annars um þá staðreynd að maðurinn sem banaði syni hans gangi laus. Gunnar Rúnar Sigurþórsson var dæmdur í 16 ára fangelsi árið 2011 í Hæstarétti eftir að hafa verið dæmdur ósakhæfur í héraðsdómi.
Í síðustu viku var greint frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 að Gunnari Rúnari hefði verið tilkynnt að hann mætti ekki mæta aftur til vinnu hjá Hafnarfjarðarbæ eftir að hafa unnið þar í þrjá daga. Gunnar Rúnar fór á Vernd í fyrra en eitt af skilyrðum þess að fá að vera á Vernd og afplána utan fangelsis er að vera í vinnu eða námi.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður félags fanga, gagnrýndi Hafnarfjarðarbæ harðlega í viðtali við Stöð 2 og sagði hann það hafa gengið mjög erfiðlega fyrir Gunnar Rúnar að fá vinnu. Hefur hann verið í sjálfboðaliðavinnu og þegið fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ.
„Þetta er samt maður sem vill taka þátt í samfélaginu og koma betur út og byrja að borga skatta og ná að lifa og vera góður samfélagsþegn. Hann fékk tækifæri til þess hjá Hafnarfjarðarbæ í síðustu viku en hann var búin að vinna í þrjá daga þegar honum var sagt upp,“ sagði Guðmundur Ingi.
Á Facebook-síðu Íslands í dag er birt tilvitnun í Helga þar sem hann segir: „Mér finnst bara að menn sem gera svona við aðra eigi að fá að gjalda í sömu mynt.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Helgi viðrar þá skoðun sína en það gerði hann einnig í viðtali við DV í fyrrasumar.
„Ég hef mjög einfalda skoðun á þessu. Það ætti að vera auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Ég hef bara þessa einu skoðun og þetta þyrftu menn þá að vita áður en þeir ákveða að taka líf annarra. Menn sem hafa svona hugsunarhátt þyrftu að geta vitað að ef þeir taka líf annarra þá verði líf þeirra líka tekið.“
Í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku sagði Guðmundur Ingi að Hafnarfjarðarbær hefði gefið upp þá ástæðu að kvartanir hefðu borist frá öðrum starfsmönnum. Þeir vildu ekki vinna með honum. „Við teljum að það sé ólíðandi árið 2020 að bæjarfélag fari þannig fram með fordómum, mismunum og útskúfun,“ segir Guðmundur. Þá sagði hann að allir ættu rétt á öðru tækifæri, sama hve alvarlegt brotið er.
„Mér finnst bara að menn sem gera svona við aðra eigi að fá að gjalda í sömu mynt“ segir Helgi Vilhjálmsson í Góu en í...
Posted by Ísland í dag on Mánudagur, 18. maí 2020