„Mér blöskra þessar árásir á Samherja, vel rekið og arðbært fyrirtæki“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kemur Samherja til varnar í færslu á Facebook-síðu sinni.

Mjög hefur gustað um Samherja undanfarna mánuði og hafa Seðlabankamálið og svo uppljóstrun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um starfsemi fyrirtækisins í Namibíu verið áberandi undanfarin misseri.

Hannes Hólmsteinn segist ekkert botna í þeirri meðferð sem Samherji hefur fengið.

„Mér blöskra þessar árásir á Samherja, vel rekið og arðbært fyrirtæki, sem veitir fjölda manns vinnu. Fyrri árásinni lauk með sýknudómi í Hæstarétti, og auk þess skrifaði sérstakur saksóknari Samherja bréf um, að fyrirtækið hefði alltaf reynt að fara að reglum um gjaldeyrisskil. Lesa má um það dæmalausa mál í ágætri bók um Gjaldeyriseftirlitið, sem Almenna bókafélagið gaf út,“ segir Hannes Hólmsteinn.

Hann vindur sér svo að Namibíumálinu og vandar Jóhannesi Stefánssyni, fyrrverandi starfsmanni Samherja, ekki kveðjurnar. Þess má geta að Jóhannes fékk fyrir helgi virt verðlaun í Svíþjóð fyrir uppljóstranir sínar.

„Helsti hvatamaður að seinni árásinni, Jóhannes uppljóstrari, er augljóslega ekki áreiðanlegur heimildarmaður; hann fer með firrur um, að Samherji hafi reynt að eitra fyrir sér, og efnir til fjársöfnunar fyrir lækniskostnaði! Sú ákvörðun RÚV að láta fréttamann, sem siðanefnd átti engan kost annan en lýsa brotlegan við reglur um óhlutdrægni, halda áfram í fréttaflutningi af málinu sætir furðu.“

Hannes minnir á að menn teljist saklausir uns sekt þeirra hefur verið sönnuð fyrir dómstólum. „Það kæmi mér raunar ekki á óvart, ef Jóhannes uppljóstrari og hjálparmenn hans reyndust einir sekir um lögbrot í Namibíu. Líklega er Samherji sekur um aðeins einn glæp og hann voðalegan, að verja sig, ef hann er ráðist.“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er á allt öðru máli en Hannes Hólmsteinn. Færsla Bubba um Samherja um helgina vakti gríðarlega athygli. Hringbraut greindi frá færslunni en þar sagði Bubbi að árásir Samherja á fréttamanninn Helga Seljan væru fordæmalausar og hann væri nánast kjaftstopp vegna gjörða fyrirtækisins.