Menningarnótt var útilokuð vegna reynslunnar í Eyjum og Færeyjum

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, segir í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld að ákvarðanir um menningarviðburði og fleiri starfsemi hafi oft verið teknar „nánast yfir nótt“ og út frá hvernig sóttvörnum borgin taldi ábyrgt að fylgja.

Stórum viðburðum hefur verið aflýst í borginni vegna Covid faraldursins; Hinsegin dögum og Gleðigöngunni og Menningarnótt en það tókst þó að dreifa 17.júní hátíðum um hverfi borgarinnar. Fyrirhugað var að skipuleggja Menningarnótt með dreifingu viðburða í huga en frá því var horfið.

„Missirinn af því að hafa þurft að aflýsa þessum viðburðum er auðvitað mikill en um leið töldum við það eina ábyrga í stöðunni“.

En þýða þessar aflýsanir kannski minni útgjöld fyrir borgina?

„Nei, það þýðir það raunverulega ekki. Varðandi þessar hátíðir veitum við styrki“, segir Dagur og að borgin geri áætlanir um að mæta þeim listamönnum sem ekki náðu að koma fram og fengu styrki.

„Þetta er tap á alla kanta“, segir Dagur. En um hvort borgin muni styrkja listamennina samt sem geta ekki komið fram segir hann: „Við munum sýna því mikinn skilning að kostnaður sem þegar er fallin til, að við séum ekki hörð á því að endurheimta slíka styrki, við höfum gefið listafólki sem hefur fengið styrki tilslakanir varðandi það að setja verkin sín upp síðar“

„Við höfum að öllu sem að borginni snýr bara reynt að setja okkur í annarra spor“

Dagur segir aðallega tvo viðburði hafa orðið til þess að á endanum var Menningarnótt slegin af því ýmsir möguleikar voru áður í stöðunni. „Við vorum búin að útfæra hana á nýjan hátt, hún myndi dreifast yfir tíu daga og vera svolítið öðruvísi og smærri"

Hann nefnir sérstaklega reynsluna frá Vestamannaeyjum um verslunarmannahelgina þar sem Þjóðhátið var aflýst en fólk engu að síður hafu streymt til Eyja og upp komu mörg smit í kjölfarið.

„Og svo Ólafsvakan í Færeyjum sem var talið var veirufrítt land, en þau héldu Ólafsvökuna og ætluðu að hafa einhverjar takmarkanir en nýgreind smit í Færeyjum eru núna miklu meiri en á Íslandi og heljarmikill pakki fyrir Færeyinga til þess að takast á við. Þannig að það var skynsamlegast að slá Menningarnótt alveg af“, segir Dagur.

"Við vissum líka að Menningarnótt á bara þann stað í hjarta borgarbúa og gesta borgarinnar að ef fólk veit að það er flugeldasýning í restina þá hefði það mætt“.

Frétta og umræðuþátturinn 21 er á dagskrá Kl.21 í kvöld og svo endursýndur og má finna á flakkinu líka.