Meiri­hlutinn í borginni mun reyna að halda völdum: „Við fórum yfir stöðuna og á­kváðum að halda saman“

Odd­vitar nú­verandi meiri­hluta í borginni: Sam­fylkingar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna hittust á fundi í gær til að fara yfir stöðu mála.

Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttri, odd­viti Við­reisnar, segir í sam­tali við Vísi að flokkarnir hafi á­kvð­eið að „halda saman.“ Flokkarnir freista því þannig að fá Fram­sókn með sér í sam­starf og verja þannig nú­verandi meiri­hluta sem féll í kosningunum um helgina.

Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, hefur úti­lokað að Vinstri græn taki þátt í meiri­hluta­sam­starfi og til­kynnti hhún hinumún­hinum odd­vitunum á fundi þeirra í gær.

Flokkarnir sem koma til greina til að verja meiri­hlutann eru Fram­sókn, Sjálf­stæðis­flokkinn eða Flokk fólksins og Sósíal­ista­flokkinn. Píratar hafa hins vegar úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæðis­flokki og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti Sósíal­ista, hefur úti­lokað sam­starf við Við­reisn.

Spurð um hvort að Fram­sókn sé ekki lík­legastur til að fara inn í Meiri­hlutann segir Þór­dís það ekki rætt sér­stak­lega á fundinum í gær.

„Við ræddum það ekki öðru­vísi en að við byrjuðum bara þetta sam­tal. Við fengum þær fréttir í gær þannig að við bara fórum yfir stöðuna og á­kváðum að halda saman. Það eru á­kveðin skila­boð út og svo byrjar sam­talið út frá því,“ segir Þór­dís Lóa í sam­tali við Vísi.

Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sóknar­flokksins, ætlar að hitta Dag B. Eggerts­son, odd­vita Sam­fylkingarinnar, á fundi í dag.

Einar sagði að hann og Dagur hefðu ræðst við eftir sjón­varps­um­ræður á Stöð 2 í gær­kvöld og orðið sam­mála um að hittast á fundi.