Meiri­hluti þeirra sem neita að bera grímur er drukkinn: „Að vísu er meiri­hlutinn karlar“

Guð­mundur Páll Jóns­son, lög­reglu­full­trúi hjá lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu segir að meiri­hluti til­kynninga sem lög­reglan fái vegna þeirra sem neita að bera grímur í verslunum séu vegna þeirra sem eru undir á­hrifum á­fengis.

Þetta segir Guð­mundur í sam­tali viðRíkis­út­varpið í dag. Fréttir bárust af því í morgun að starfs­maður verslunar í mið­bæ Reykja­víkur hefði orðið fyrir árás við­skipta­vinar sem ekki vildi bera grímu, líkt og skylda er nú um mundir vegna heims­far­aldurs CO­VID-19.

„Þar kom maður án grímu inn í verslun. Hann var beðinn um að setja upp grímuna en neitaði því og brást illa við og ógnaði starfs­manni. Þannig að hann hringdi á lög­reglu sem kom á staðinn. Við tókum niður allar upp­lýsingar um þennan mann, hann verður tekinn fyrir eftir helgi og á von á að greiða sekt. Ef hann greiðir ekki sektina þá fer þetta fyrir dóm­stólana,“ segir Guð­mundur Páll í sam­tali við RÚV.

Hann segir lög­regluna oft fá slíkar til­kynningar, um að starfs­fólki sé hótað eða á það ráðist. Hann segir að meðal þeirra sem ekki vilja bera grímur sé fjöl­breyttur hópur á öllum aldri.

„Að vísu er meiri­hlutinn karlar.“