Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla, var kjörinn formaður Kennarasambands Íslands og mætti hann í viðtal á RÚV í gærkvöldi til að ræða verkefnin framundan. Boðskapur hans hefur farið vel í landann, það voru helst íslenskusérfræðingar, oft sjálfskipaðir, sem hafa gert athugasemdir við það sem hann hafði fram að færa.
„“Mér langar” sagði nýkjörinn formaður Kennarasambands Íslands í fréttum RÚV,“ sagði Ásgeir nokkur í hópnum Málvöndunarþátturinn á Facebook, varð það að háværum umræðum í hópnum um meinta hnignun íslenskunnar. „Mig langar,“ mun vera rétt orðanotkun.
Margir kepptust við að gera lítið úr Magnúsi:
„Ætti hann kannski frekar að vera formaður nemendafélagsins,“ sagði Hjörleifur nokkur.
„Ég held að það þurfi að skerpa verulega á íslenskukennslu í skólum,“ sagði Heiða.
Þá fóru af stað umræður um hvort „mér langar“ væri orðið rétt vegna hefðar sem væri búin að skapast:
Tobbo nokkur hélt tölu yfir hópnum:
„Í fyrsta lagi: Þeir sem segja „mig langar“ eru í verulegum minnihluta meðal þjóðarinnar.
Í öðru lagi: Hvers vegna er verra að segja „mér langar“ en „mér finnst“?
Í þriðja lagi: Hvers vegna er í lagi að segja fólk sem er öðruvísi sjúkt? Sérstaklega þegar sjúkdómsgreinendurnir eru í verulegum minnihluta?
Í fjórða lagi: Hvers vegna er þetta svona hættulegt? Hvað gæti gerst svona um það leyti að 100% þjóðarinnar tala svona og orsakað af mérunum?“
Þá sögðu nokkrir að Magnús hefði talað óskýrt og kannski hafi hann í raun sagt „mig langar“:
„Ég heyrði hann segja oftar en einu sinni "það sem mig langar til að gera" Ég ráðlegg ykkur, sem bregðist svona snöggt við, að hlusta aftur og hlusta betur,“ sagði Margrét.
„En endaþótt hann hefði sagt "mér" segir það ekkert um það hvernig hann muni reynast í þessu starfi.“