Fyrsta meiðyrðamál tónlistarmannsins Ingólfs Þórarinssonar, best þekkur sem Ingó Veðurguð, verður tekið fyrir í héraðsdómi á föstudag. RÚV greindi fyrst frá þessu.
Málið er byggt á kröfubréfi til Sindra Þór Hilmari-Sigríðarsyni sem sent var á hann í júlí, þar krafðist Ingó þriggja milljóna króna í bætur og afsökunarbeiðni fyrir ummæli sem Sindri lét falla í athugasemdakerfi.
Sindri sagði í færslu í sumar að hann iðaði af hlökkun að mæta Ingólfi í dómssal. „Ástæðan fyrir því að ég segist hlakka til að mæta Ingólfi í dómssal er að ég er með 100 kommenta twitter þráð og inbox fullt af skilaboðum með vitnisburði um hans hegðun síðastliðin ár,“ segir Sindri sem er áhyggjulaus.
Þáverandi lögmaður Ingó sendi fjórum öðrum kröfubréf síðasta sumar. Edda Falak, Ólöf Tara Harðardóttir, Kristlín Dís Ingilínardóttir, þáverandi blaðamaður á Fréttablaðinu og Erla Dóra Magnúsdóttir, blaðamaður á DV, fengu bréf. Þær, sem og Sindri, sögðust ekki ætla að borga Ingó eða biðjast afsökunar. Haraldur Þorleifsson, auðkýfingur, sagðist á Twitter ætla að borga allan kostnað sem hlytist af málunum.
Ekki liggur fyrir hvort þau mál verði einnig þingfest.