Megas fær á­fram heiðurs­laun lista­manna þrátt fyrir al­var­legar á­sakanir

Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, mun áfram fá heiðurslaun listamanna.

Vísir greindi frá þessu í morgun en þetta var ákveðið á fundi allsherjar- og menntamálanefndar sem fram fór í morgun. Til umræðu kom að svipta hann heiðurslaununum eftir að ásakanir um kynferðisofbeldi komu fram.

Í frétt Vísis kemur fram að ákveðið hafi verið að gera engar breytingar á lista yfir þá einstaklinga sem hljóta heiðurslaun listamanna að þessu sinni.

Alþingi hefur heimild til að veita 25 listamönnum heiðurslaun en tveir einstaklingar á listanum féllu frá á árinu, Jón Sigurbjörnsson leikari og söngvari og Vilborg Dagbjartsdóttir rithöfundur. Enginn kemur í þeirra stað og því munu 23 listamenn fá þessi heiðurslaun á nýju ári.

Á dögunum steig Bergþóra Einarsdóttir fram í viðtali við Stundina og lýsti því að Megas hafi brotið á henni ásamt yfirmanni hennar árið 2004. Hún lagði fram kæru vegna málsins árið 2010 en þá sagði lögregla að brotið væri fyrnt.

Bergþóra sagði í viðtalinu við Stundina að hún hafi síðar lesið textann við lagið Litla ljót, nafn sem Megas hafi kallað hana fyrir atburðinn, og séð þar hrópandi samsvörun við það sem hafi átt sér stað.