Davíð Kristinsson og eiginkona hans, Eva Ósk Elíasardóttir auglýstu fyrir skömmu eftir fjölskyldu með langveikt barn eða aðila sem er að berjast við krabbamein, með það fyrir augum að bjóða viðkomandi ókeypis gistingu á Tenerife.
„Það hefur gengið vel hjá okkur síðustu þrjú árin en við keyptum húsið í febrúar árið 2020. Okkar hugmynd var að einhver gæti nýtt þennan lausa tíma til góðs en við fengum miklu meiri viðbrögð en við áttum von á. Við fengum um 30 umsóknir og svo var fólk að benda okkur á fjölskyldur,“ segja hjónin í samtali viðmbl.is.
Í gærkvöldi var greint frá því að Helgi Rúnar Bragason sem glímir við fjórða stigs krabbamein í ennisholum og koki mun fá að skella sér í fríið á Tene í boði Davíðs og Evu.
„Að geta fengið svona hús og boðið mínum nánustu með mér er frábært,“ segir Helgi við mbl.isen hann er 46 ára Akureyringur ættaður frá Grindavík.
Hann flýgur út með fjölskyldunni 17. April.
„Þetta er svo sannarlega kærkomið. Sérstaklega þar sem krabbameinið mitt er í ennisholunum og ég á erfitt með öndun. Það léttir svo mikið á að vera úti í hita,“ segir Helgi Rúnar.
„Þetta breytir öllu að finna fyrir náungakærleik og að til sé fólk sem er tilbúið að láta gott af sér leiða,“ segir Hildur Ýr Kristinsdóttir, eiginkona Helga.
Hún var honum til halds og trausts í viðtalinu þar sem Helgi á erfitt með að tjá sig fullkomlega. Hægt er að lesa viðtal mbl.is við fjölskyldunahér.