„Með blússandi Co­vid á fleygi­ferð um landið“

„Mér finnst langt frá því rétt­lætan­legt að flytja veiruna til landsins eins og hverja aðra sölu­af­urð,“ segir Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins.

Inga gerir opnun landsins að um­tals­efni í pistli á Face­book-síðu sinni, en eins og kunnugt er var í dag hafist handa við skimanir á þeim ferða­mönnum sem koma til landsins. Inga hefur látið í sér heyra um opnun landsins og telur hún að verið sé að taka ó­þarfa á­hættu.

„Þetta ramm­falska öryggi sem felst í skimunum á landa­mærunum með til­heyrandi fyrir­höfn og til­kostnaði er hein og klár á­hætta sem á að taka á kostnað borgaranna. Sótt­varnar­læknir í­trekaði það dag­lega og vikum saman að skimun á ein­kenna­lausum Co­vid sýktum ein­stak­lingi geti verið nei­kvæð og því ekki á­stæða á þeim tíma að Veiru­fræði­deildin skimaði aðra en þá sem sýndu ein­kenni sjúk­dómsins. Nú allt í einu er það, það besta í stöðunni.“

Inga segir að við­komandi far­þega sé síðan „treyst til að fara á dvalar­stað sinn og bíða eftir niður­stöðu úr sýna­tökunni, sem leikandi geti verið nei­kvæð og við­komandi með blússandi Co­vid á fleygi­ferð um landið.“

Inga segir að engin á­stæða sé til að draga fag­mennsku Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis í efa. Hún setur þó spurningar­merki við það að ekki sé reynt að „forða okkur frá far­þegum landa“ þar sem far­aldurinn geisar stjórn­laust. Inga nefnir engin nöfn í þessu sam­hengi en ef­laust mætti benda á Sví­þjóð þar sem far­aldurinn hefur látið mikið að sér kveða.

„Þetta er síðasta sort og að­gerð sem er til þess fallin að skjóta okkur á byrjunar­reit með öllum þeim ó­þægindum og van­líðan sem því fylgir fyrir skatt­greið­endurna sem eru nógu góðir til að borga brúsann. Í stað þess að geta glaðst yfir fórn­fýsi og sam­starfs­vilja okkar allra þegar við stóðum öll sem eitt með þrí­eykinu og allir vildu hlýða Víði, þá er hér spiluð Rúss­nesk rúlletta um líf og heilsu lands­manna.“

Inga deilir frétt Mbl.is í pistlinum þar sem kom fram að fyrsta flug­vél dagsins hefði lent á Kefla­víkur­flug­velli í morgun. Um var að ræða vél frá Wizz Air og var hún að koma frá London. Alls voru átta vélar á­ætlaðar í dag en þær eru frá Osló, London, Fær­eyjum, Frankfurt, Stokk­hólmi og svo þrjár frá Kaup­manna­höfn.