McDonalds þema í þriðja búning Liverpool - „I'm lovin' it“

Knattspyrnufélagið Liverpool kynnti þriðja búninginn sinn á miðvikudag. Netverjar voru fljótir til að benda á líkindi með litapallettunni og starfsmönnum McDonalds hamborgararisans. McDonalds svaraði Liverpool einmitt á samfélagsmiðlinum Twitter og sagðist elska þennan búning, hvaðan kom eiginlega hugmyndin. Var því svarað með slagorði McDonalds sem er I'm lovin' it.

Ekki voru allir netverjar hrifnir af búningnum en trúlega eru þeir ekki endilega stuðningsmenn félagsins. Þá eru bretar allt annað en frægir fyrir góða hegðun eða kurteisi á veraldarvefnum.