„Börnin okkar hafa lent í mávaárásum og þora ekki út. Ásamt því að það er ekki svefnfriður hér á nóttunni,“ segir móðir í Hvassaleiti í íbúahópi íbúa í hverfi 103 og 108 í Reykjavík.
Mávar hafa verið áberandi inni í borgarlandinu að undanförnu og hafa sumir lýst árásum af þeirra hálfu á samfélagsmiðlum eins og Hringbraut fjallaði um í gær. Hefur því verið velt upp að hegðun mávanna hafi breyst að undanförnu; þannig séu þeir árásargjarnari og meiri truflun af þeim, til dæmis á næturnar.
Gunnar Þór Hallgrímsson, prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands, segir hegðun mávanna þó ekki undarlega. Í samtali við Fréttablaðið segir hann að umræða um þetta skjóti reglulega upp kollinum.
„Ég er ekki mjög gamall, en síðan ég var unglingur og byrjaði að fylgjast vel með fuglum hef ég tekið eftir því að þetta er umræða sem blossar reglulega upp. Hún kemur og fer,“ segir Gunnar.
Hann segir að mávurinn sé að líkindum áberandi um þessar mundir vegna þess hve varpið var gott í sumar. Gunnar er sérfróður um sílamávinn sem gert hefur fólki lífið leitt undanfarnar vikur.
„Þegar varp gengur vel eru þeir lengur í varpinu, og það er staðan núna,“ segir hann og bætir við:
„Þeir steypa sér ekki á fólk nema þeir séu að verja eitthvað,“ segir hann og bætir við að það sem nú er í gangi sé árekstur á milli fólks og varps mávana.