„Undanfarin fimm, sex ár hefur maurategundum verið að fjölga hjá okkur,“ segir Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir í samtali við Fréttablaðið í dag.
Blaðið greinir frá því að maurum sé að fjölga á Íslandi og fær Guðmundur Óli um tvö til þrjú símtöl á mánuði þar sem óskað er eftir aðstoð við að losna við maura.
„Það er kominn blökkumaur, faraómaur, eldmaur, svo eigum við náttúrlega maur hérna sem heitir húsamaur, öðru nafni klóakmaur,“ segir Guðmundur í Fréttablaðinu en hann rekur þessa fjölgun til erlendra og innlendra ferðamanna sem bera maurana með sér heim.
Gallinn við þessa fjölgun er sá að ekki er hægt að eitra fyrir maurum með hefðbundnum hætti eins og til dæmis gert er þegar silfurskottur gera vart við sig.
„Því það er sérstakt eitur fyrir hverja tegund. Við erum með litlar beitustöðvar sem við setjum efnið í. Maurarnir taka efnið og fara með inn í búið og drepa drottninguna þaðan. Þeir drepa sig innan frá,“ segir hann.
Maurarnir eru þó í eðli sínu saklausir og valda engum skaða.
„Nei, þetta er bara hvimleitt. Hugsaðu þér að vera inni á hótelherbergi. Ef þú liggur og ert að slaka á og lítur upp í loftið og sérð allt í einu mauraþyrpingu fara yfir loftið. Þetta er mjög hvimleitt en er ekki að gera neitt.“
Nánar í Fréttablaðinu í dag.