Matur hækkar mikið á tímum CO­VID: Lýsið hækkaði um 200 krónur

Verð í mat­vöru­verslunum hefur í mörgum til­fellum hækkað um­tals­vert síðan í febrúar en miklar verð­hækkanir er að finna í flestum vöru­flokkum. Mörg dæmi eru einnig um lækkun eða verð standi í stað. Á­berandi er hækkun á hollustu­vörum. Sem dæmi þá nemur verð­hækkun á lýsi í helstu verslunum landsins frá 1,6 upp í 26,1%.Þetta kemur fram í könnun ASÍ.

Dýrir á­vextir

Miklar verð­hækkanir má finna í nær öllum vöru­flokkum en í mörgum til­fellum lækkar verð einnig. Mestar verð­hækkanir eru á brauði, kexi, snakki, pakka­mat, bökunar­vöru og öðrum þurr­vörum á­samt dósa­mat og sósum en nokkuð al­gengt er að þessar vörur hækki um 10-20%.

Mestar hækkanir eru þó á á­vöxtum og græn­meti og má í mörgum til­fellum sjá um eða yfir 50% verð­hækkanir í þeim vöru­flokki. Eitt dæmi um mikla hækkun var á Lýsi en 240 ml. flaska af þorska­lýsi hækkaði í einni verslun um tvö hundruð krónur

Verð­lags­eftir­lits ASÍ kannaði verð dagana 18. febrúar og 21. apríl 2020.

Þær verslanir sem saman­burðurinn nær til eru Bónus, Krónan, Hag­kaup, Nettó, Fjarðar­kaup, Iceland, Kjör­búðin, Heim­kaup.is og Netto.is.