„Ég get ekki stigið fram á opinberum vettvangi og nafngreint manninn sem nauðgaði mér. Ef þú hefur verið beitt kynferðislegu ofbeldi máttu ekki nafngreina því þá ertu dómstóll götunnar og ert að aflífa menn án dóms og laga en svo ef þú ferð í gegn um dómskerfið eru allar líkur á að málið verði fellt niður,“ segir Andrea Aldan Hauksdóttir.
Andrea er til viðtals ámbl.is og visir.is en hún birti pistil á dögunum þar sem hún ræðir áreitni Ingólfs Veðurguðs í sinn garð fyrir nokkrum árum síðan, sem og nauðgun sem hún varð fyrir, fyrir nokkrum árum síðan.
„Ég stend við barinn og finn að það er einhver að taka upp pilsið mitt. Svo aftur. Ég sný mér við og er þá ekki Reðurguðinn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt,“ skrifar Andrea í færslunni.
Hún hefur enn ekki kært manninn sem nauðgaði henni og segir réttarkerfið bregðast þolendum.
„Kerfið er að bregðast okkur og öll þessi umfjöllun í fjölmiðlum og að ofbeldismenn vinni yfirleitt málin fyrir dómstólum sendir konum þau skilaboð að þegar þær lenda í svona ofbeldi geti þær ekki talað því þeim er ekki trúað. Þannig að þær opna ekki á þetta, tala ekki um þetta og leita sér ekki hjálpar. Og það þarf að grípa stelpur strax um leið og svona gerist svo þær geti unnið betur úr þessu og þetta vindi ekki upp á sig,“ segir Andrea.
„Þær konur sem hafa verið hugrakkar í gegn um tíðina og stigið fram og leitað réttar síns eru teknar í einhverja opinbera hakkavél og þeim er ekki trúað.“