Hafþór Júlíus Björnsson, fyrrverandi sterkasti maður heims, undirbýr sig nú af kappi fyrir boxbardaga við Bretann Eddie Hall. Upphaflega stóð til að bardaginn færi fram í september en honum var frestað þar til í mars á næsta ári.
Hafþór hefur unnið stíft að því að léttast undanfarna mánuði og hefur dæmigerður matseðill hans tekið nokkrum breytingum í samræmi við það. Hafþór veitti fylgjendum sínum á YouTube örlitla innsýn í hvað hann borðar yfir daginn.
Í myndbandinu segir Hafþór að áður hafi hann borðað steik fimm til sex sinnum á dag en núna lætur hann sér duga tvær slíkar máltíðir yfir daginn. Þegar hann var að reyna að styrkjast og þyngjast innbyrti hann um 10.000 hitaeiningar á dag en þær eru nokkuð færri um þessar mundir.
Hafþór hefur lést töluvert síðustu mánuði, en þegar hann var þyngstur vó hann rúm 200 kíló en í dag er hann um 150 kíló. Það er kannski eðlilegt sé litið til þeirra breytinga sem hann hefur gert á mataræðinu.
Þrátt fyrir þessar breytingar er ekki svo að skilja að Hafþór fái sér spínathristing í morgunmat.
Morgunmaturinn samanstendur af 250 gramma steik með tveimur eggjum, 60 grömmum af höfrum, 100 grömmum af jarðarberjum og 50 grömmum af bláberjum. Hafþór segist hafa skipt út rib-eye steik fyrir svokallaða flank-steik en hún er fituminni en rib-eye steikin.
Önnur máltíð dagsins er einnig nokkuð stór og samanstendur af 250 gramma nautalund, 140 grömmum af hrísgrjónum, kjúklingi og spínati.
Þriðja máltíðin samanstendur af 225 grömmum af þorski, 100 grömmum af spínati og 250 grömmum af kartöflum.
Fjórða máltíðin samanstendur svo af 225 grömmum af laxi, 100 grömmum af hrísgrjónum og 100 grömmum af kúrbít.
Síðasta máltíðin er svo einskonar eftirréttur og samanstendur af 250 grömmum af jógúrt/skyri, 100 grömmum af berjum og 30 grömmum af annað hvort möndlum eða hnetusmjöri.