Mar­tröðin á Júllanum af­hjúpuð: „Þarna voru ein­fald­lega peningar settir ofar manns­lífum“

Í fyrra fór frysti­togarinn Júlíus Geir­munds­son á Ísa­firði í sögu­lega sjó­ferð en af 25 manna á­höfn reyndust allir nema þrír hafa smitast af Co­vid þær rúmu þrjár vikur sem skipið hafði verið á sjó.

Stundin hefur nú gert ítar­lega greiningu á málinu sem birtist í nýjasta tölu­blaði Stundarinnar.

Þar kemur meðal annars fram að margir lágu illa haldnir jafn­vel svo dögum skipti en á meðan hafi fé­lagar þeirra reynt að halda vinnslunni um borð gangandi, veikir.

Frá­sagnir af raunum skip­verjanna vöktu hörð við­brögð á sínum tíma en fregnir bárust hratt af veikum mönnum við vinnu eða liggjandi á bekkjum sem eins og Stundin segir að hljómaði eins úr 19. aldar leik­riti.

„Það tók mig langan tíma að átta mig á skömminni sem maður burðaðist með eftir þetta,“ segir Kjartan Ágúst Páls­son, sem var mats­maður í um­ræddum túr í sam­tali við Stundina. „Að maður skuli hafa leyft þeim að koma svona fram við sig. Fyrst á eftir upp­lifði maður sig eins og ein­feldning að hafa látið fara svona með sig. Það tók mig langan tíma að ná mér af þeirri skömm.“ Kjartan glímir enn við af­leiðingar veikindanna.

Í huga annars er skýrt að líf hans var ekki það mikil­vægasta um borð.

„Maður er auð­vitað enn á fullu að vinna úr þessu,“ segir Bjarki Birgis­son, fyrr­verandi Baader­maður á Júlíusi Geir­munds­syni. „Það er auð­vitað hel­víti harka­legt að segja það en þarna voru ein­fald­lega peningar settir ofar manns­lífum, það er ekki hægt að komast að annarri niður­stöðu.“

Hægt er að lesa ítar­lega út­tekt Stundarinnar um „Mar­tröðina á Júllanum“ hér.