Þorvaldur Jón Ottósson átti einn sinn versta dag síðastliðinn mánudag. Dagurinn hófst á því að Þorvaldur kom að bíl sínum á kafi í snjó og með brotnar rúður. Svo virðist sem mokað hafi verið yfir bílinn. „Þetta var talsvert áfall“ segir Þorvaldur í samtali við Fréttablaðið sem kallaði til aðila til að gera tjónaskýrslu. Hann ákvað svo að fara í gufubað í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði til að jafna sig og slaka á.
Í gufubaðinu tók ekki betra við. Þar losnaði og féll stór og mikill ofn, á annað hundrað kíló, á gólfið með miklum látum. Hann kveðst hafa verið í mikilli geðshræringu og er nú sárkvalinn. Þorvaldur segir í samtali við Fréttablaðið:
„Þetta er lítið rými með flísum og þetta var ekkert eðlilegur hávaði sem myndaðist þarna innandyra. Þetta var eins og sprenging og það þekki ég vel enda unnið sem jarðvegsverktaki og komið fyrir ófáum sprengihleðslum í gegnum tíðina.“
Þorvaldur segir ofninn á annað hundrað kíló og var Þorvaldur og annar gestur heppinn að fá ekki ofninn á sig. Lögreglan var kölluð til og er Þorvaldur ósáttur við framgöngu þeirra:
„Þeir komu bara fram við mig eins og ég væri eitthvað ruglaður. Það var mjög dapurlegt að fá þær viðtökur,“ segir Þorvaldur og bætir við: „Ég er með stöðugan són fyrir eyranu og hausverk. Ég bíð eftir niðurstöðu læknis um hvort skaðinn sé varanlegur.“
Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu í dag.