Marteinn með hug­mynd fyrir „bjarg­lausa liðið í Ráð­húsinu“ – „Frá­bær hug­mynd“ segir Þór­dís Lóa

Marteinn Jónas­son, líkt og aðrir í­búar í borginni, hefur orðið var við snjó­moksturs­vanda Reykja­víkur­borgar. Hann hefur hins vegar lausn upp í erminni sem kemur frá landi hinna frjálsu, Banda­ríkjunum.

„Hér er hug­­mynd fyrir þetta bjarg­­lausa lið þarna í Ráð­húsi Reykja­víkur - í NYC skella þeir tönnum framan á rusla­bílana og nota þá í snjó­mokstur þegar það kemur snjó­­stormur - ekki eins og það sé verið að nota bílana og mann­­skapinn í rusla­tæmingu í snjó­­stormi. Þetta er frítt ráð og Þór­­dís Lóa þú kannski kemur þessi í gagnið,“ skrifar Marteinn og merkir við Þór­dísi í færslunni.

Þórunn Reynis­dóttir tekur undir með Marteini og segir það eigi að senda borgar­stjórn til Banda­ríkjanna í kennslu.

Sigur­jón Ragnar bendir þá á ein vand­kvæði við þessa hug­mynd og það er sú að „rusla­bílinn kemur aldrei“ í Reykja­vík.

Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar í borgar­stjórn, tekur hins vegar undir með Marteini og segir „frá­bær hug­mynd.“

Marteinn segir þá að lokum að Þór­dís fái hug­myndina frítt „gegn því að að þú vaðir í þetta“