Marta María vill 120 milljónir fyrir eignina í Foss­voginum – Sjáðu myndirnar

Marta María Jónas­dóttir, um­sjónar­kona Smart­landsins á mbl.is, hefur sett eign sína við Lautar­veg í Foss­vogi á sölu. Um er að ræða býsna glæsi­lega jarð­hæð með sér­inn­gangi og bíl­skúr, á­samt auka­í­búð, í þrí­býli. Eignin er 230 fer­metrar og er á­sett verð 119,8 milljónir króna.

Auka­í­búðin í húsinu er 64 fer­metrar og er hægt að opna á milli ef kaup­endur vilja stækka eigin íbúð. Sér­smíðaðar inn­réttingar frá Brún­ás eru á hæðinni, kvart­steinn á öllum borð­plötum og spegla­klæddir skápar í for­stofu og í hjóna­svítu.

Hæðin sjálf er 165,7 fer­metrar, með 30 fer­metra bíl­skúr, en á hæðinni eru tvö bað­her­bergi, annað inn af hjóna­her­bergi og hitt á gangi. Tekið er fram í sölu­lýsingu að eignin verði ekki sýnd fyrr en í opnu húsi.

Marta María er aug­ljós­lega mikil smekk­manneskja eins og með­fylgjandi myndir bera með sér. Lík­lega hefur hún komið eitt­hvað við í Epal á undan­förnum árum en í stofunni má meðal annars sjá Eggið, tíma­lausa hönnun Arne Jacob­sen, og Svaninn eftir sama hönnuð. Við eld­hús­borðið eru svo Sjöurnar svo­kölluðu sem einnig eru eftir Arne Jacob­sen.

Myndirnar má sjá hér að neðan og hér má nálgast sölu­lýsingu eignarinnar.