Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vandar sjónvarpsmanninum og borgarfulltrúanum fyrrverandi Gísla Marteini Baldurssyni ekki kveðjurnar. Marta skrifar grein á vef Vísis þar sem hún gagnrýnir orðræðu hans í tengslum við samgöngumál borgarinnar. Kallar hún hann pjakk og prinsessu meðal annars í grein sinni.
„Þú hefur verið óvenju drjúgur með þig þessa dagana, pjakkurinn þinn, og er þá mikið sagt,“ segir Marta í grein sinni og vísar í Facebook-færslu Gísla Marteins á dögunum. Þar lýsti Gísli Marteinn yfir óánægju sinni með sinn gamla flokk og sagði hann vera mótfallinn því að ökuhraði í hverfum borgarinnar verði lækkaður. Segir Marta að í færslunni hafi hann ráðist á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins með ósannindum og vísbendingum.
Sjá einnig: Gísli Marteinn hjólar í sinn gamla flokk: „Íbúar ALLRA hverfa í borginni vilja rólegri bílaumferð“
„Ég er nánast hætt að reyna að siða þig til þó þú sért gamall félagi sem mér er ekki alveg sama um. Ég ætlaði því að leiða hjá mér skvaldrið í þér, enda hefur því verið prýðilega svarað af tveimur afbragðs konum á lista okkar sjálfstæðismanna, Þórdísi Pálsdóttur og Ragnhildi Öldu Vilhjálmsdóttur. Ég hélt að þær hefðu haft af mér ómakið,“ segir Marta en svo var aldeilis ekki, ef marka má pistil hennar.
„Mér var hins vegar illa brugðið þegar ég heyrði til þín í Bakaríinu á Bylgjunni, laugardaginn 24. apríl. Ég veit ekki hvort er hvimleiðara, stykkin þín á Facebook frá 20. apríl, eða sá Emil í Kattholti sem var mættur í Bakaríið til að afbaka strákapörin. Það kann ekki góðri lukku að stýra, að ljúga upp á gamla pólitíska samstarfsfélaga og grípa síðan aftur til ósanninda þegar þú ert staðinn að verki. En svona er nú háttalagið. Því fer kannski best á því að ég verði þriðja konan á lista Sjálfstæðisflokksins sem tekur þig í bakaríið á fáeinum dögum,“ segir Marta sem fer svo yfir meint ósannindi Gísla Marteins á Facebook og í Bakaríinu.
Þannig sé það ekki rétt að Sjálfstæðismenn séu á móti því að ökuhraði bíla inn í hverfum borgarinnar verði lækkaður. Það sé einnig ósatt að Sjálfstæðismenn berjist fyrir auknum ökuhraða í hverfum borgarinnar. Hún segir að Gísli Marteinn hafi svo gætt þess vandlega í Bakaríinu að blanda Sjálfstæðisflokknum ekki um of í málið. Hann hafi sagt til sé gott fólk í öllum flokkum og að í grasrótum flokka væri líka vont fólk. Segir Marta að Gísla hafi alla tíð verið meinilla við grasrót Sjálfstæðismanna í Reykjavík.
„Jú. Þú varst ein af prinsessum Sjálfstæðisflokksins og RÚV. En nú ert þú bara prinsessa RÚV. Þú varst frjálshyggjumaður, komst þér í mjúkinn hjá valdamiklum sem og velstæðum sjálfstæðismönnum og vildir verða borgarstjóri fyrir Sjálfstæðisflokkinn, keyptir ómæld gallon af bjór og tonn af pitsum sem þú útdeildir eins og rómverskur keisari - en, en, en þú tapaðir samt í fjölmennasta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, fyrr og síðar, fyrir grasrót flokksins í Reykjavík, árið 2006. Þess vegna er þér meinilla við þessa grasrót.“
Grein Mörtu má lesa í heild sinni hér.