Marsibil Sæmundardóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, kom af fjöllum þegar algrímar Facebook rifjuðu upp fyrir hana færslu sem hún setti á miðilinn fyrir 13 árum. Skildi hún ekkert hvað hún hafði verið að meina:
„Er þetta mesti aulahrolls gamli Facebook status EVER!? Já,“ skrifar hún og bætti við:
„...og já ég hef ekki hugmynd!“
Marsibil settist í borgarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn árið 2006. Hún sagði sig svo úr flokknum í ágúst 2008 vegna REI-málsins. Í febrúar 2009, fyrir 13 árum, gekk hún svo til liðs við Samfylkinguna.
„Ég tel mig gera það best í Samfylkingunni, með því fólki, hugmyndafræði, hugsjónum og aðferðafræði sem þar er við lýði. Ég skráði mig því í Samfylkinguna í gærkvöldi og hlakka til að takast á við verkefni framtíðarinnar,“ skrifaði hún á bloggið sitt. Setti hún svo færsluna umræddu á Facebook.
Natan Kolbeinsson í Viðreisn rifjaði þetta upp fyrir Marsibil sem svaraði með miklum hlátri og þökkum.