Markaðurinn velur verstu við­skipti ársins: „Skandall að svona mol­búa­háttur tíðkist enn“

Markaðurinn, við­skipta­blað Frétta­blaðsins, birtir í dag út­tekt um bestu og verstu við­skipti ársins auk þess sem maður ársins í ís­lensku við­skipta­lífi er valinn. Það er skemmst frá því að segja að á­lits­gjafar Markaðarins völdu Boga Nils Boga­son, for­stjóra Icelandair Group, mann ársins.

Nokkur við­skipti voru til­nefnd sem verstu við­skipti ársins en hlut­skarpast þar varð á­kvörðun stjórnar Líf­eyris­sjóðs verzlunar­manna um að taka ekki þátt í út­boði Icelandair í haust. Raunar hlaut þessi á­kvörðun yfir­burða­kosningu, að því er fram kemur í Markaðnum í dag.

Gengi hluta­bréfa í Icelandair hefur hækkað veru­lega frá því að út­boðið átti sér stað en að sögn dóm­nefndar er það ekki aðal­á­stæða til­nefningarinnar. Aðal­á­stæðan er sögð sú að stjórn sjóðsins hafi látið undan þrýstingi frá stjórn VR undir for­ystu Ragnars Þórs Ingólfs­sonar formanns. Var stjórn VR meðal annars ó­á­nægð með það hvernig staðið var að kjara­við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Ís­lands.

Einn á­lits­gjafi Markaðarins segir að á­kvarðanir sem byggja á öðrum sjónar­miðum en skyn­sam­legri eigna­stýringu hljóta að komast ofar­lega á lista yfir verstu við­skipti ársins.

„Al­gjör skandall að svona mol­búa­háttur tíðkist enn á meðal stærstu ís­lensku fag­fjár­festanna,“ segir hann.

Um­fjöllun Markaðarins um verstu við­skiptin.