„Það er stífur slagur í samfélaginu núna á milli annars vegar bakarameistara og hinsvegar sölumanna hjálpartækja ástarlífsins um notkun á orðinu múffa. Hvorugur hópurinn virðist ætla að gefa sig en bakarar vilja nota það sem þýðingu á "muffin" og finnst bollakaka ekki duga til, en sölumenn hjálpartækja ástarlífsins um "gervipíkur," svona hefst færsla grínistans Gísla Jóhanns inn í hópnum Markaðsnördar.
„Ég get séð hvernig gervipíka er ekki söluaukandi orð, ekki frekar en gervilimur og hvað þá rúnkmúffa, þannig mér datt í hug nokkur önnur orð sem ég vil stinga uppá:
Rúnkráður
Handleikur (og þá talað um að handleika sig)
Hjálmfægir
Reðslíður (eða Reðurslíður?)
Lókamósjon
Sjálfsstrokkur
Hasarvasar
Sölumönnum hjálpartækja ástarlífsins er frjálst að nota þessar uppástungur án endurgjalds, en ef svo fer þá þigg ég kannski eina múffu úr næsta bakaríi,“ bætir Gísli við.
Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, segir í samtali við Vísi að það hefur lengi verið upp hugmyndir um að breyta nafninu og tengjist það bakörum ekki með neinum hætti.
Fjölmargir hafa lagt orð í belg og lagt til nýtt heiti en þar má finna Vasapjalla, Ferðapjalla eða Partýpjalla. Þá stingur einn upp á nafninu Hasarvasar og annar upp á einloka, svaðilgöng og ánægjuvog.
Handriðill og hadrið koma líka nokkuð oft fyrir og er ljóst að fjölmargir hafa ákveðið að nýta daginn í að leika sér með orð í þessu samhengi.