Draumfarir fólks geta verið býsna skemmtilegar eins og María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, hefur komist að raun um.
María birti skemmtilegan þráð á Twitter-síðu sinni þar sem sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn Baldursson kemur meðal annars við sögu.
María segist hafa vaknað alveg brjáluð út í Gísla Martein. Hann hafði hringt með stuttum fyrirvara og beðið mig um að vera gestur í Vikunni ásamt Vilhelm Neto og Lovísu Jónsdóttur.
„Ég hafði eiginlega eengan tíma en ákvað samt að láta vaða. Ég hljóp heim og fann engin föt sem voru fín. Ingileif naglalakkaði mig og við reyndum að redda því sem hægt var að redda. Ég hljóp upp í RÚV og hitti þar Villa sem var klár í útsendinguna. Við bjuggum til secret handshake og vorum sjúklega peppuð fyrir þættinum,“ segir hún.
Hún segir að þegar þau voru að búa sig undir að mæta í settið hafi Gísli Marteinn birst í myndavélinni og sagt: „Þau héldu að þau væru gestir kvöldsins, þau María Rut, Villi og Lovísa. En það er fyrsti apríl og vá hvað þau voru teeeekin - og svo skot á okkur í græna herberginu.“
María segir að á meðan allir hlógu hafi þau staðið neyðarleg á meðan hann stillti upp pappamyndum af þeim í líkamsstærð fyrir aftan sófann. Hann hafi svo boðið raunverulega gesti þáttarins velkomna og sagt: „Þau fá nú samt að vera hér í pappaformi heheh.”
María endar svo færsluna á þessum orðum:
„Og við vorum beðin um að yfirgefa svæðið enda vorum við bara hluti af aprílgabbi Gísla. Nú ætla ég ekki að biðja Gísla Martein að svara fyrir draumfarir mínar. En ég varð bara að koma þessu út. Þetta var í senn mjög neyðarlegt og niðurlægjandi.“
Gísli Marteinn brást vel við færslu Maríu og benti á að grínið væri kannski ekki svo langsótt.
„Þetta er mjög fyndið, sérstaklega í ljósi þess að við ætluðum að gera akkúrat þetta grín í þættinum 1. apríl með Önnu Svövu - en hún var á Tene. (Hún átti samt að vita af þessu en leika sig hissa/sára/niðurlægða einsog þið voruð).“
1/5 Ég vaknaði alveg brjáluð út í @gislimarteinn [þráður]. Hann hafði hringt með stuttum fyrirvara og beðið mig um að vera gestur í Vikunni ásamt @VilhelmNeto og @LovisaJons. Ég hafði eiginlega eengan tíma en ákvað samt að láta vaða.
— María Rut (@mariarutkr) April 5, 2022