Twitter-notandinn María Lilja tísti í dag um atvik sem hún segist hafa orðið vitni að í gærnótt. Þar segist hún hafa séð tvær ungar konur á rafskutlu slasa sig eftir „móturhjólalögga ákvað að “fræða þær vingjarnlega” um hættur rafskutlna í umferðinni. Með ljósin kveikt notaði hún mótorhjólið og þjarmaði að/þvingaði felmtraðar konurnar af götunni svo skutlan straukst í hliðarkant og kúventi á stéttina.“
María Lilja segist hafa gefið sig að tali við lögreglukonuna og gert athugasemd við þetta framferði. Þá segir hún lögreglukonuna hafa hlegið að málinu og „kvaðst vera á “lögreglutæki” og hafa fulla heimild til að stöðva hvern sem væri. Spurð hvort að konurnar hefðu brotið lög, keyrt ógætilega eða af miklu gáleysi var fátt um svör.“
Lögreglukonan ók út í nóttina
Hún segir lögreglukonuna ekki hafa stigið af mótorhjóli sínu til að líta til með konunum, sem hafi meðal annars slasast á baki og mjöðm. „Eftir orðaskipti við mig, afsökunarbeiðni og einhverjar umvandanir yfir hopinn sem komin var að, hélt lögreglan bara af stað burtu sína leið út í nóttina,“ segir María Lilja.
Konurnar hafi síðan sjálfar leitað á bráðamóttökuna en María Lilja segir mikla mildi að það hafi ekki verið bílar á akbrautinni. „Þá hefði þessi óþarfa valdbeiting lögreglu sem virðist aðeins hafa verið til að eiga við tvær fullorðnar konur óbumbeðið umferðar”spjall” getað stórslasað eða drepið einhvern.“
Að lokum segir María Lilja að tími sé til að leggja niður lögregluna.
Sá 2 ungar konur á hoppi slasast þegar móturhjólalögga ákvað að “fræða þær vingjarnlega” um hættur rafskutlna í umferðinni. Með ljósin kveikt notaði hún mótorhjólið og þjarmaði að/þvingaði felmtraðar konurnar af götunni svo skutlan straukst í hliðarkant og kúventi á stéttina
— ☭ María Lilja 🇵🇸☭ (@1312Mayhem) June 20, 2021