„Maður spyr sig, hvað er í gangi? Er háttvirt ríkisstjórn að kikna undan þrýstingi hagsmunahópa?“
Þessari spurningu varpar María Manda Ívarsdóttir, sem titlar sig íslenskan ríkisborgara, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Þar skrifar María um fyrirætlanir stjórnvalda að taka upp nýtt litakóðakerfi á landamærunum frá 1. maí næstkomandi.
Sitt sýnist hverjum um þetta en margir hafa áhyggjur af því að með þessu sé verið að opna fyrir holskeflu smita inn í íslenskt samfélag. María Manda spyr hvort þakka eigi þjóðinni fyrir vel unnin störf með því að opna landamærin enn frekar.
Eins og óþolinmóð börn á jólum
„Til að fá hingað, hvað…? 5.000 túrista því þeir muni bjarga þjóðarbúinu og fækka atvinnulausum. Þetta eru eins og krakkar sem fá að opna pakka fyrir mat af því að þeir geta ekki beðið eftir jólunum. Fyrir hverja er þetta eiginlega?“
María segir að ef markmiðið sé að bjarga Icelandair sé það ekki eina flugfélagið sem bíður í ofvæni eftir því að fljúga hingað.
„Þjóðin hefur haldið þessu flugfélagi gangandi með beinum eða óbeinum hætti eins lengi og ég man eftir. Við gerum það bara áfram og löngu orðið tímabært að þjóðin fái hlutabréf í pósti.“
Draumsýn eða minnimáttarkennd
Hún segir það óskiljanlega draumsýn eða óþolandi minnimáttarkennd gagnvart erlendum ríkjum að bera það fyrir okkur að örfáir túristar muni bjarga íslenskum efnahag og fækka atvinnulausum.
„Ef það er eitthvað sem kemur þjóðfélaginu á lappirnar þá eru það við sjálf, það er að segja ef við fáum frelsi til þess! Eins og haldið okkar fermingarveislur, útskriftir, brúðkaup, afmæli, íþróttamót, útihátíðir, árshátíðir, ferðalög og menningarviðburði án takmarkana. Verið á pöbbnum kannski til 12 og farið í sturtu í ræktinni. Ein fermingarveisla hefur margföldunaráhrif út í þjóðfélagið, efnahag og atvinnuleysi.“
María spyr hvort við ætlum virkilega að taka þessa áhættu
„Eru íbúar til í fjórðu bylgju? Það þarf bara eitt smit. Ég skora á þingmenn að sýna okkur áfram kjarkinn til að hlusta á ráðleggingar sérfræðinga sem hefur skilað okkur stórkostlegum árangri og draga þetta óðagot til baka og þakka þjóðinni með raunverulegu frelsi.“
Greinina má lesa í heild hér.