Leikkonan María Ellingsen lýsir því í samtali við Sigurlaugu M. Jónasdóttur í þættinum Segðu mér þegar hún var ofsótt af draug. Maríu þekkja flestir Íslendingar enda ein fyrsta Hollywood-leikkona okkar Íslendinga ef svo má segja.
Í þættinum, sem fjallað er um á vef RÚV, segir María frá voveiflegum atburðum sem áttu sér stað um það leyti sem hún lék í myndinni Agnes, í leikstjórn Egils Eðvarðssonar, árið 1995. Eins og kunnugt er var Agnes síðasta konan sem tekin var af lífi á Íslandi, en það gerðist í marsmánuði árið 1828.
María lék Agnesi í umræddri mynd og lagði töluvert mikið á sig til að kynnast henni og þessari merkilegu sögu. María fékk þó að eigin sögn að kynnast Agnesi nánar en hún kærði sig um.
„Hún gekk ljósum logum, hún var rosalega nærverandi,“ sagði María meðal annars og bætti við að Agnes hafi vakið Maríu á næturnar og látið öllum illum látum.
„Ég þurfti að fá miðil sem setti salt undir rúmið og blessaði allt. Hún andaði alveg ofan í hálsmálið á mér,“ sagði María meðal annars og bætti við að á kvikmyndahátíð í Prag hafi María snúið sér að Agnesi og í raun beðið hana um að láta sig í friði:
„Jæja Agnes mín, er þetta ekki orðið gott? Núna ertu búin að fara til útlanda og við erum búin að segja söguna þína. Ertu ekki bara ánægð með þetta?“
Í þættinum sagði María að Agnes virtist ekki enn hafa fengið nóg og leggur hún sig enn fram um það að halda sögu sinni á lofti.
Í viðtalinu ræðir María einnig um árin í Hollywood, tengslin við Færeyjar, náttúruverndina og ástina.