Ýmislegt virðist nú benda til þess að eldgos muni hefjast á Reykjanesi en klukkan 14:20 hófst óróapúls og mælist hann á flestum jarðskjálftamælum. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands er hann staðsettur suður af Keili við Litla-Hrút.
„Slík merki mælast í aðdraganda eldgosa en ekki hefur verið staðfest að eldgos sé hafið.“ Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er þyrla á leið í loftið til að kanna aðstæður.
Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna, segir við mbl.is að óróapúlsinn þýði að líklega geti byrjað að gjósa innan nokkurra klukkustunda.
„Þetta kallar á að við virkjum kerfið allt saman og við erum að undirbúa aðgerðir,“ sagði Víðir í samtali við mbl.is.
Boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag.