Margrét Sigríður loksins komin með húsnæði: Flytur af hjúkrunarheimilinu eftir páska

Það voru sannkölluð tímamót í Silfursmára í gær þegar Margrét Sigríður Guðmundsdóttir tók á móti lyklunum að íbúð sinni sem Ármann Ólafsson frá Brynju leigufélagi afhenti henni.

Meðfylgjandi mynd, sem birtist í Fréttablaðinu í dag og Anton Brink tók, sýnir þegar Margrét fékk lyklana afhenta.

Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega um málefni Margrétar Sigríðar að undanförnu en hún hefur verið í baráttu við Kópavogsbæ og ríkið undanfarin ár vegna úrræðaleysis.

Sjá einnig: „Kópavogsbær hefur rænt þremur árum af lífi mínu“

Hún getur nú loksins flutt út af hjúkrunarheimilinu sem hún hefur búið á síðastliðin tvö ár. Vonir standa til að hún flytji inn eftir páskana og því stutt í flutningana.