Margrét Rósa Einarsdóttir, vert sem rekur Hótel Glym í Hvalfirði, segir farir sínar ekki sléttar eftir heimsókn nokkurra ferðamanna á hótel hennar á dögunum.
„Nú er mér allri lokið,“ segir Margrét í færslu á Facebook-síðu sinni sem vakið hefur talsverða athygli.
„Er að reka hótel og þegar koma íslenskir hópar þarf maður að taka fram að ekki er hægt að koma með sitt eigið vín, nema til að drekka á herberginu ef menn vilja það og standa svo stundum í stappi við að fá gesti til að skilja að við erum með þjóna á fullu kaupi við að þjóna þeim og selja þeim vín og bjór og aðra drykki.“
Margrét bendir á að vínveitingaleyfi kostar stórfé og því fylgi að gestir megi ekki drekka sitt eigið vín í hennar húsum. Hún segir svo frá bandarískum gestum sem heimsóttu hótelið um helgina og sögðust vera með sitt eigið vín sem þau ætluðu að drekka með matnum. Margrét segist hafa sagt þeim að því miður væri það ekki hægt, en hún virðist hafa talað fyrir daufum eyrum.
„Nú sitja þau í góðu yfirlæti í mínum sófa, með mitt útsýni, við mitt kertaljós og drekka úr mínum glösum vínið sem þau komu með. Og ég kann ekki við að reka þau upp á herbergi.“
Færsla Margrétar hefur sem fyrr segir vakið talsverða athygli og tekur fólk úr veitingabransanum meðal annars undir. „Var að reka fólk til baka með sína eigin vínflösku af veitingastaðnum hjá mér í kvöld líka - það voru Íslendingar,“ segir til dæmis í einni athugasemd.