„Ísland er ríkt land á flesta mælikvarða og við eigum að geta tryggt velferð allra. Við þurfum hins vegar að gera betur enda á enginn Íslendingur að þola að þúsundir barna lifi við fátækt, langa biðlista og óboðlegar aðstæður aldraðra síðustu æviárin, svo einhver dæmi séu tekin.“
Svona hefjast bakþankar Margrétar Kristmannsdóttur í Fréttablaðinu í dag. Hún segir málið einfalt, flesta skilja þetta: „Til þess að reka okkar litla samfélag á sanngjarnan hátt þarf að skipta byrðunum með þeim hætti að breiðustu bökin beri þyngstu byrðarnar.“
Hún segist þó halda að margt efnameira fólk setji hreint ekki í forgang að borga lægri skatta þó vissulega séu þekkt dæmi um annað. Margrét segir baráttuna fyrir sem lægstu sköttum á efnamesta fólk heimsins einfaldlega vera barátta sem á sér æ færri fylgjendur.
„Þetta er deyjandi hugmyndafræði í heimi sem þarf nauðsynlega á vaxandi jöfnuði að halda,“ skrifar Margrét.
Hún bendir á að Warren Buffett, einn ríkasti maður heims hafi sagst telja það ósanngjarnt hve lága skatta hann borgar. Efnað fólk eins og hann sjálfur hefði verið ofdekrað af Bandaríkjaþingi í of langan tíma.
„Kári Stefánsson orðaði þetta þó sennilega best þegar hann steig fram fyrir nokkrum árum og gerði kröfur um að efnameiri menn eins og hann sjálfur borguðu hærri skatta enda skattkerfið að hans mati óréttlátt. Þegar fréttamaðurinn spurði hvort þetta þýddi í raun að hann vildi sjálfur borga hærri skatta sagði Kári málið ekki snúast um hvað hann langaði að gera – heldur hvernig samfélagi hann vildi búa í.
Alþingi er komið í sumarfrí – en þetta verður stóra spurningin í kosningunum í haust.
Njótið sumarsins þangað til.“