Margrét Friðriksdóttir hefur verið sýknuð af ákæru um brot gegn valdstjórninni, en henni var gefið að sök að hafa sparkað í lögreglumann sem var við skyldustörf við heimili hennar í Reykjavík aðfaranótt 8. júlí 2019.
Greint er frá þessari niðurstöðu á fréttavef DV.
Margrét lýsti atvikinu í samtali við Fréttablaðið í októbermánuði en hún sagði að það hefði átt sér stað áður en hún fór í áfengismeðferð í fyrra.
Hún hafi verið ölvuð á heimili sínu og dóttir hennar fengið áhyggjur og hringt eftir sjúkrabíl. „Þeir sendu bara lögregluna og lögreglan kom til að handtaka mig og ég fékk aldrei neina hjálp,“ sagði Margrét. Hún sagði lögregluna segja ósátt um meinta líkamsárás til að geta réttlætt handtöku og vistun í fangaklefa yfir nótt. Hún hafi verið í vanda stödd, dóttir hennar leitað eftir aðstoð en í stað þess að veita aðstoð hafi hún verið látin dúsa í fangaklefa. Og í þokkabót ákærð fyrir að ráðast á lögreglumann sem læknar fundu ekkert að.
„Ég var alveg mjög lemstruð eftir þeirra framgöngu og ef það var einhver sem varð fyrir líkamsárás þessa nótt þá var það ég. Þeir eru að reyna að snúa þessu við,“ sagði Margrét sem neitaði staðfastlega sök þegar málið var þingfest í byrjun októbermánaðar.
Í færslu á Facebook í dag, eftir að niðurstaða fékkst í málið, segist Margrét vera þakklát dómstólum fyrir að virka sem skyldi. Réttlætið hafi sigrað.
„Ég er hinsvegar mjög svekkt og finnst leitt að vita til þess að lögregla gangi fram með þessum hætti sem ég kalla ólöglega valdníðslu og vona ég að verklagi hjá lögreglu og neyðarlínu verði breytt til hins betra í framhaldi og stuðlað sé að því að slíkt geti ekki aftur átt sér stað. Það vill enginn lenda í þessari stöðu og vera sakaður ranglega um alvarlegan glæp sem varðar allt að 8 ára fangelsi og að sæta réttarstöðu sakbornings í svo langan tíma fyrir rangar sakargiftir er erfitt og niðurlægjandi,“ segir Margrét sem segist horfa bjartsýn og brosandi fram á veginn enda stutt í jólin.