Margrét sá ó­rétt­lætið út um eld­hús­gluggann í Kópa­vogi

„Ó­jöfnuðurinn og ó­rétt­lætið blasti við út um eld­hús­gluggann,“ segir Margrét Krist­manns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pfaff, í bak­þönkum Frétta­blaðsins um helgina.

Margrét þykir með bestu pistla­höfundum landsins og ber pistill hennar um helgina þess merki.

„Þegar vetur var handan við hornið var eigin­maðurinn sendur út í skúr að smíða nýjan fóður­pall fyrir fuglana í hverfinu. Út­koman var fjári góð og dag einn var pallurinn settur út með við­höfn og ýmiss konar góð­gæti dreift á hann í ó­mældu magni. Fuglarnir voru ekki lengi að átta sig á að boðið hafði verið til veislu í hverfinu og mið­aldra hjón horfðu stolt á at­ganginn út um gluggann,“ segir Margrét sem bætir við að skömmu síðar hafi friðurinn verið úti.

„Stór svart­þröstur tók að ein­oka fóður­pallinn og varna öðrum fuglum að­gangs að matnum með vængja­slætti og á­rásum. Allt í kringum fóður­pallinn stóðu hnípnir og svangir smá­fuglar, en fáir lögðu í svart­þröstinn freka. Og þá rann upp fyrir mér að bar­áttan í kringum fóður­pall í Kópa­vogi var birtingar­mynd þess sem hrjáir heiminn. Á pallinum var nóg að borða en græðgi og yfir­gangur kom í veg fyrir að allir fengju sinn skerf. Svart­þrösturinn gat borðað nægju sína en samt unnað öðrum að fá sitt. Ó­jöfnuðurinn og ó­rétt­lætið blasti við út um eld­hús­gluggann.“

Margrét bendir á að ó­jöfnuður sé eitt stærsta úr­lausnar­efnið í heiminum í dag. Það er jú vissu­lega nóg til handa öllum en mis­skipting valdi því að sumir eiga miklu meira en þeir geta nokkurn tíma notið á meðan aðrir hafa ekki neitt.

„Á meðan sumir eiga fullar kistur fjár veit stór hluti mann­kyns ekki hvaðan næsta mál­tíð kemur. Jafn­vel í einu ríkasta landi heims – Ís­landi – standa fjöl­skyldur í röðum eftir matar­út­hlutun á meðan aðrir liggja af­velta af of­áti,“ segir Margrét sem er þeirrar skoðunar að það verði að stokka spilin og gefa upp á nýtt.

„Við getum ekki haldið á­fram á sömu braut. En á meðan málið er ó­leyst þurfa góð­gerða­sam­tök á stuðningi þínum að halda sem aldrei fyrr. Gleði­lega jóla­há­tíð.“