Margrét Bjarnadóttir, listamaður, segir að reiðin sem blossaði upp við fréttir af fimmmenningunum í síðustu hafi verið nátengd reiðinni sem hún fann fyrir þegar hún gekk inn á bar við Austurvöll með vinkonum sínum fyrir jól þar sem þær mættu stórum hópi miðaldra karla.
Hún segir í grein á Vísi að þær hafi rétt verið komnar inn úr dyrunum þegar ókunnugur maður hafi tekið niður andlitsgrímu einnar og strokið henni í framan. Stuttu síðar hafi annar maður káfað á henni við barinn.
„En þetta var náttúrlega ekkert ný eða framandi reynsla, þetta hefur alltaf verið svona og maður á óteljandi svona sögur en kannski af því að ég var ekki að drekka áfengi þetta kvöld og maður hafði ekki farið á barinn lengi og önnur metoo bylgjan hefur verið í gangi, þá var þetta svo ótrúlega skýrt og þolið gagnvart þessu í sögulegu lágmarki,“ segir Margrét.
Hún varð reið við að rifja upp öll önnur skipti þar sem hún var beðin um að brosa og káfað á henni. „Breytingin virðist allavega ekki hafa ratað á barina. Að minnsta kosti ekki á barina sem miðaldra karlarnir sækja.“
Margrét veltir því upp hvort þessi kynslóð karla, miðaldra menn, eigi erfitt með umræðuna núna. „Þeir eru ekki ungir – en heldur ekki orðnir gamlir. Þeir eru í hringiðunni, í áhrifastöðum, yfirmenn, stjórnendur fyrirtækja … Þetta er einmitt sú kynslóð karlmanna sem þyrfti að vera sérstaklega meðvituð um kúltúrinn sem hefur fengið að viðgangast og hegðunar- og viðhorfsbreytingarnar sem þurfa að eiga sér stað.“
Hefur hún á tilfinningunni að þeir nenni ekki að setja sig inn í málið. „Þeir eru kannski meðvitaðir um umræðuna en ég hef á tilfinningunni að upplýsinga-upptakan hjá sumum sé mjög grunn og stutt í óþolið – en ef maður hlustar bara með egóinu sínu eða í vörn, þá meðtekur maður ekki neitt.“
Hún segist hafa tekið eftir að margir hafi afgreitt fréttir af máli Vítalíu sem „sorglegt“: „Nei, þetta er fyrst og fremst viðbjóðslegt og ömurlegt og það þarf að ræða þetta – meira og lengur. Fletta lögunum af, einu af öðru – því þetta er í mörgum, hárfínum lögum og þetta snýst ekki bara um fimm spillta og dómgreindarlausa karla úti í bæ.“