Margrét lagði inn bótakröfu á Icelandair – Sjáðu svarið sem hún fékk

Margrét Friðriksdóttir, frumkvöðlafræðingur og ritstjóri Fréttin.is, lagði inn bótakröfu á Icelandair í gær. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku var Margréti vísað úr flugvél Icelandair í fylgd lögreglu þann 23. september síðastliðinn og taldi hún sig eiga rétt á bótum vegna málsins.

Það tók þó Icelandair ekki langan tíma að svara Margréti ef marka má færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

„Ég lagði inn bótakröfu á Icelandair í dag en það tók ekki nema 3 klukkutíma að svara, og var mér neitað um endurgreiðslu,“ segir Margrét meðal annars.

Í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku kom fram að til orðaskipta hafi komið milli hennar og starfsmanna Icelandair vegna grímuskyldu í vélinni. Margrét sagði það bara hluta af sögunni og benti á að hún hefði borgað fyrir svokallaða cabin-tösku til að taka með sér í farangursrýmið.

„Þær sögðu að það væri ekki pláss fyrir töskuna mína í vélinni,“ sagði Margrét en þegar hún kom að sætinu sínu var nóg pláss laust í farangursrýminu fyrir ofan sætið. „Fullt af plássi og ég sagði: Heyrðu það er pláss hérna fyrir töskuna, en þær sögðu nei.“

Þá hefðu starfsmenn farið að tala um að það væri grímuskylda og hún hefði komið af fjöllum. „En þeim fannst ég vera með rosa vesen og vísuðu mér úr vélinni og ég fékk ekki að fljúga,“ sagði Margrét við Fréttablaðið í síðustu viku en hún var á leið til Rússlands.

Í færslu sinni í gærkvöldi sagðist Margrét hafa verið með forfallatryggingu og þá hefði henni borist lögregluskýrsla vegna málsins í gær. Þar komi fram að hún hafi verið róleg og það stangist á við það sem flugfélagið reynir að halda fram. Icelandair byggi málatilbúnað sinn á ósannindum.

„Þess ber að geta að ég samþykkti að vera með grímu og þeir tækju handfarangurinn minn með dýrum og brothættum búnaði, þrátt fyrir þetta var mér vísað út fyrir framan fjölda vitna. Icelandair er með allt niðrum sig í þessu máli og fer því málið fyrir dómstóla.

Í svarinu frá Icelandair sem Margrét birtir segir:

„Ég vísa til erindis þíns og samskipta við starfsmenn félagsins undanfarna daga. Áður en lengra er haldið, og að gefnu tilefni, er rétt að árétta að öryggi farþega og áhafnar er ávallt í fyrirrúmi í öllum flugum á vegum félagsins. Líkt og áður kann að hafa komið fram mat áhöfn flugsins, með framangreind sjónarmið að leiðarljósi, að háttsemi og atferli þitt í aðdraganda flugs FI532 þann 23. September væri þess eðlis að þau væru nauðbeygð að meina þér far með framangreindu flugi. Verðum við því góðfúslega að hafna beiðni þinni um endurgreiðslu og/eða frekari bætur.“