Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og bakþankahöfundur Fréttablaðsins, segir að það sé gott að búa á Íslandi en bendir þó á að við getum gert svo miklu betur á mörgum sviðum.
Í bakþönkum Fréttablaðsins í dag skrifar Margrét meðal annars um umræðuhefðina á samfélagsmiðlum hér á landi og rifjar upp eina sögu af kunningjakonu sinni sem ákvað að hella sér út í pólitík fyrir nokkrum árum. Konan ákvað að heimsækja foreldra sína og vara þá við áður en ákvörðunin yrði gerð opinber.
„Ástæða heimsóknarinnar var að búa gömlu hjónin undir þær umræður sem myndu fylgja henni þegar hún yrði orðin opinber persóna. Og eitt brýndi hún sérstaklega fyrir foreldrunum – aldrei nokkurn tíma mættu þau fara inn á kommentakerfi fjölmiðlanna eða fylgja eftir spjallþráðum, þar sem búast mætti við að dóttir þeirra væri til umræðu. Með þessu vildi hún verja foreldra sína fyrir þeim skrifum sem hún vissi að biðu hennar handan við hornið,“ segir Margrét.
Hún segir að það þurfi reyndar ekki að vera opinber persóna til að vekja nettröllinn. Margrét bendir á að eftir síðustu bakþanka hennar hafi hún verið sögð „haugruglað eintak og veruleikafirrt“.
„Við verðum seint sammála um allt, en það eru svona skrif sem ég vil gagnrýna – þar sem rökræðan er engin og eingöngu hjólað í manninn. Við hljótum að geta rætt málin og sýnt hvert öðru gagnkvæma virðingu,“ segir Margrét réttilega og bendir á að í dag séu margir sem veigra sér við að taka þátt í umræðunni því þeir hreinlega óttast að lenda í hakkavélinni sem fylgir því að láta skoðun sína í ljós.
„En við þurfum okkar öflugasta fólk upp á dekk í þeim verkefnum sem fram undan eru og fúkyrðaflaumurinn má ekki verða til þess að draga úr okkur kjark,“ segir Margrét sem hvetur fólk til að gera eitt áður en það birtir skrif sín á netinu.
„Auðvitað segjum við stundum eitthvað sem við sjáum eftir en þegar kemur að rituðu máli er ágætis mælikvarði að birta eingöngu það sem við værum sæmilega sátt við að birtist t.d. á baksíðu Fréttablaðsins undir nafni og mynd.“