Fréttakonan Margrét Helga Erlingsdóttir lent í átakanlegu samtali í dag þegar hún rakst á konu sem hélt á dúfu, eins konar friðardúfu.
„Ég stóðst ekki mátið og spurði hana hvort hún væri frá Úkraínu.
Hún horfði á mig og þagði í fyrstu en svo fylltust augun hennar af tárum. Nei, hún var frá Rússlandi. Hún skammaðist sín,“ segir Margrét Helga í færslu sem hefur vakið mikla athygli á Facebook.
„Við féllumst í faðma á miðri götu, báðar grátandi og ég sagði henni að ég væri búin að hugsa svo mikið til hennar, til allra þeirra Rússa sem fyrirlíta þessa innrás. Við vitum að þetta er ekki í hennar nafni.“
Konan sagði Margréti að hún væri að farast úr áhyggjum því hún ætti svo marga nána vini í Úkraínu, og sem væru þar enn.
„Gæti ekki borðað. Gæti ekki sofið. Hún athugaði með þau á hverjum einasta klukkutíma til að athuga hvort það sé í lagi með þau. Svarið sem hún fær ítrekað er nei. Það er ekki í lagi með þau. Og það eina sem hún getur gert er að halda áfram að spyrja, í veikri von um að svarið breytist.“