Margrét Edda Gnarr, fyrrverandi fitness-drottning, varð fyrir óskemmtilegri reynslu þegar eggi var kastað í rúðuna á heimili hennar í Víkurhverfi í Grafarvogi í dag.
Margrét segir frá þessu í Facebook-grúppu Grafarvogsbúa þar sem hún spyr hvort fleiri hafi lent í því að fá egg í rúðuna.
Óvíst er hvað sökudólgunum gekk til en í umræðunum bendir einn íbúi á að hann hafi fengið egg í rúðuna fyrir einhverjum vikum síðan.
Mögulega hafi þetta tengst einhverri áskorun hjá unglingum, að henda eggjum í einhverja glugga sem valdir eru af handahófi.
„Hef heyrt af því að það sé eitthvað sambærilegt í gangi á Selfossi,“ segir íbúinn.
Þá segir annar íbúi að ekki fyrir löngu síðan hafi tvær blokkir verið grýttar með eggjum. Sökudólgarnir virðast enn vera við þessa iðju sína.