Margrét Gauja Magnúsdóttir, leiðsögumaður og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, greindist með COVID-19 í mars síðastliðnum. Þó að brátt séu liðnir tveir mánuðir frá smitinu glímir Margrét enn við eftirköstin og kom það berlega í ljós á dögunum þegar hún hugðist ganga upp á Helgafell.
Margrét sagði frá því í færslu á Facebook á laugardag að hún hefði, að ráði sjúkraþjálfara, átt að ganga að Helgafelli, fara 30% uppfellið og svo til baka. Margrét var tilbúin í slaginn og full tilhlökkunar að reima á sig skóna og arka af stað.
„En nei, í gær sagði líkami minn hingað og ekki lengra og fann, mjög svo skelkaður, nágranni mig ælandi útí garði á fjórum fótum, grenjandi um að ég væri að kafna,“ segir Margrét í færslunni en hún tjáði sig einnig um málið í samtali við DV í gær.
„Áður en þetta gerðist á föstudaginn var ég búin að eiga fjórar nokkuð góðar vikur, misorkumikil eftir dögum, stundum hausverkur, en ég hafði ekki veikst svona allan þann tíma. Ég er hjá sjúkraþjálfara tvisvar í viku og gengur vel og svo er ég í fjartímum í öndunarjóga, einkatímum hjá vinkonu minni. Í rauninni gengur þetta vel og ég er að gera allt rétt, að ég held,“ sagði hún við DV.
Í færslunni og í viðtalinu tók hún fram að hún væri ekki að óska eftir vorkunn eða stuðningi. Hún hafi sterkt bakland en hafi orðið vör við það að þeir sem glíma við eftirköst COVID-19 upplifi sig eina
„Ef það eru fleiri en 1800 manns sem fengu þessa greiningu hér á landi þá eru örugglega fleiri en ég í þessum sporum. Ef einhver þeirra lesa þetta þá vita þau að þau eru ekki ein og þau eru ekki geðveik. Ég hringdi buguð í covid-deildina á föstudagskvöld og grenjaði bara, af því ég skil þetta ekki. Ég er gamall náttúrufræðikennari og ég vil fá að vita hvað er að mér. Mér var hálfpartinn bent á að tala við sálfræðing. En ég er í mjög góðu andlegu jafnvægi og þarf ekki sálfræðing út af þessu,“ sagði hún við DV en tók fram að íslensk stjórnvöld ættu allt hrós skilið fyrir það hversu harkalega var tekið á veirunni. Þá hafi hún fengið afbragðsþjónustu meðan á veikindunum stóð.
Viðtal DV við Margréti Gauju.