Margrét Gauja Magnúsdóttir, leiðsögumaður og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, sendir ungum leikmanni í kvennaliði Breiðabliks hlýjar kveðjur eftir að hún greindist með COVID-19.
Konan sem um ræðir er fædd árið 1996 og hefur smitið nú orðið til þess að liðsfélagar og þjálfarar hennar, sem og leikmenn og þjálfarar KR, þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví. Talið er að hún hafi smitast í Bandaríkjunum þó ekki sé hægt að slá því föstu. Tvö innanlandssmit hafa greinst í kjölfarið.
Þegar konan kom til landsins reyndist sýnataka sem hún gekkst undir á Keflavíkurflugvelli neikvæð. Þegar hún frétti af því að manneskja sem hún hafði umgengist ytra hefði greinst með veiruna fór hún í sóttkví og gekkst í kjölfarið undir aðra sýnatöku sem reyndist jákvæð. Unga konan hafði hins vegar spilað með liði Breiðabliks og verið úti á meðal fólks í millitíðinni.
Margrét Gauja þekkir baráttuna við COVID-19 af eigin raun en hún greindist með veiruna í mars síðastliðnum og veiktist nokkuð hastarlega. Bataferli hennar hefur að minnsta kosti gengið hægar en hún hefði vonað. Margrét Gauja sendir ungu konunni hughreystandi skilaboð á Facebook-síðu sinni:
„Elsku þú, kæri leikmaður Breiðabliks! Þetta er ekki þér að kenna. Þú átt þakkir fyrir að stíga fram og biðja um annað test. Mér finnst þú hugrökk og töff pía. Vonandi færðu vægu útgáfuna en farðu vel með þig, hann er óútreiknanlegur þessi vírus.“