Margrét Gauja Magnúsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, leiðsögumaður og athafnastjóri hjá Siðmennt, segir að Íslendingar séu bestir þegar mest liggur við.
Hún deildi skemmtilegri örsögu um góðmennsku á Facebook á dögunum og er óhætt að segja að sagan hafi vakið mikla lukku.
„Var stödd við Kleifarvatn, í stormi, þessi gifting var ekki að fara að vera næs. Erlend brúðhjón sem elska Ísland. Ég prófa að hringja í Aurora Basecamp og ber mig auma.
,,Koddu núna, þau eru að koma frá TR eftir 30 mín",“ segir Margrét Gauja að skilaboðin til hennar hafi verið.
Aurora Basecamp stendur við Bláfjallaveg, ekki ýkja langt frá Kleifarvatni, en þar er hægt að fræðast um Norðurljósin og sjá þau skarta sínu fegursta.
Margrét segir að hún hafi mætt með brúðhjónunum og starfsmenn Tryggingastofnunar ríkisins hafi einnig verið á svæðinu að undirbúa starfsmannagleðskap.
„Ég fæ stund til að gifta veðurbarna parið. Starfsfólk TR tekur þátt, setur á uppáhaldslagið þeirra, þau dansa, allir fá bjór og skála, faðmast og gleðjast. Brúðhjónin orðlaus en ekki ég, því ég veit að í svona aðstæðum erum við best,“ segir Margrét sem þakkar Aurora Basecamp og öllum þeim hjá Tryggingastofnun sem komu að því að gera dag brúðhjónanna svona gleðilegan.