Margrét gagn­rýnir barna­efnið á RÚV: „Sendir röng skila­boð til allra barna“

Ó­hætt er að segja að færsla Margrétar Björns­dóttur á Face­book um barna­efnið hjá RÚV hafi vakið at­hygli. Þar gagn­rýnir hún þann kynja­halla sem virðist ríkja í vali á barna­efni hjá miðlinum. Nefnir hún mý­mörg dæmi um þátta­raðir þar sem aðal­sögu­per­sónurnar eru strákar.

„Mig langar að vekja at­hygli á ó­á­sættan­legum kynja­halla í vali RÚV á barna­efni. Það er ekki boð­legt að ríkis­fjöl­miðill, sem öllum ber að greiða til, skuli ekki mæta lág­marks kröfum um jafn­réttis­sjónar­mið í dag­skrár­gerð sinni - sér­stak­lega í sjón­varps­efni fyrir ung börn sem mótast af um­hverfi sínu,“ segir Margrét.

Hún bendir á að nú sé árið 2020 og enn þá séu börn að horfa á barna­efni þar sem strákar eru sterkir og í for­ystu­hlut­verkum. Á sama séu stelpur gjarnan auka­per­sónur og þá til stuðnings.

„Þetta er ekki bara skað­legt fyrir stelpur heldur sendir þetta röng skila­boð til allra barna og endur­speglar ekki sam­fé­lag þar sem allir eiga jöfn tæki­færi!“

Í færslu sinni skorar hún á RÚV að taka stökkið inn í 21. öldina og fylgja eigin lögum um hlut­verk og skyldur þess. Bendir hún á þar segi skýrt að því beri að hafa hlut karla og kvenna sem jafnastan í starf­semi Ríkis­út­varpsins og í dag­skrá þess.

„Það er hagur allra að börn hafi að­gang að vönduðu sjón­varps­efni sem sýni stelpur jafnt sem stráka í for­ystu- og á­byrgðar­hlut­verkum.“

Margrét bendir svo á­huga­sömum á eftir­farandi lista sem er yfir meiri­hluta þeirra þátta­raða sem eru í boði:

Sammi bruna­vörður

Bubbi byggir

Símon

Hæ Sámur

Húrra fyrir Kela

Kátur

Kon­ráð og Baldur

Unnar og vinur

Refurinn Pablo

Lalli

Robbi og skrímsli

Pósturinn Páll

Hin­rik hittir

Hvolpa­sveit

Flug­skólinn

Stuð­boltarnir

Músa­hús Mikka

Al­vin og í­kornarnir

Þvegill og Skrúbbur

Leti­björn og læmingjarnir

Múmí­nálfarnir

Mig langar að vekja athygli á óásættanlegum kynjahalla í vali RÚV á barnaefni. Það er ekki boðlegt að ríkisfjölmiðill,...

Posted by Margrét Björnsdóttir on Miðvikudagur, 26. ágúst 2020